Vill endurgreiðslu eftir óvænta uppákomu í flugi Ryanair

Furðulegt á ferðalögum | 3. ágúst 2023

Ferðalangurinn Pete Ferrell fór ósáttur frá borði í flugi sínu með flugfélaginu Ryanair eftir óvænta uppákomu þar sem maður ákvað að skemmta öðrum farþegum með söng sínum.

Peter Ferrell var ekki ánægður með óvænta uppákomu í nýlegu …
Peter Ferrell var ekki ánægður með óvænta uppákomu í nýlegu flugi sínu með Ryanair. AFP/Pau Barrena

Ferðalangurinn Pete Ferrell fór ósáttur frá borði í flugi sínu með flugfélaginu Ryanair eftir óvænta uppákomu þar sem maður ákvað að skemmta öðrum farþegum með söng sínum.

Ferðalangurinn Pete Ferrell fór ósáttur frá borði í flugi sínu með flugfélaginu Ryanair eftir óvænta uppákomu þar sem maður ákvað að skemmta öðrum farþegum með söng sínum.

Ferrell deildi uppákomunni á Twitter-reikningi sínum og þar sést maðurinn standa við kallkerfi flugvélarinnar og gera tilraun til að syngja írska Eurovision-slagarann Hold Me Now með Johnny Logan.

Einhverjir farþegar virðast skemmta sér yfir uppátækinu og tóku nokkrir jafnvel undir með söngnum. Ferrell var ekki einn af þeim og fer fram á endurgreiðslu fyrir sig og fjölskyldu sína.

mbl.is