Notaði brjóstahaldara til að komast eingöngu með handfarangur í flug

Furðulegt á ferðalögum | 27. júní 2023

Notaði brjóstahaldara til að komast eingöngu með handfarangur í flug

Ferðalangurinn Chelsea Dickenson hefur prófað ýmsar leiðir til að komast með sem mestan farangur í flug. Þar á meðal notað brjóstahaldara yfir skyrtu til að geyma nærföt og sokka. Segist hún ekki þola að borga fyrir farangur þegar hún er búin að næla sér í ódýrt flugfargjald og þess vegna hafi hún tekið upp á að prófa ýmsar aðrar leiðir.

Notaði brjóstahaldara til að komast eingöngu með handfarangur í flug

Furðulegt á ferðalögum | 27. júní 2023

Chelsea Dickenson hefur gaman af því að prófa ýmis ráð …
Chelsea Dickenson hefur gaman af því að prófa ýmis ráð til að komast hjá því að borga fyrir farangursheimild í flugi. Samsett mynd

Ferðalangurinn Chelsea Dickenson hefur prófað ýmsar leiðir til að komast með sem mestan farangur í flug. Þar á meðal notað brjóstahaldara yfir skyrtu til að geyma nærföt og sokka. Segist hún ekki þola að borga fyrir farangur þegar hún er búin að næla sér í ódýrt flugfargjald og þess vegna hafi hún tekið upp á að prófa ýmsar aðrar leiðir.

Ferðalangurinn Chelsea Dickenson hefur prófað ýmsar leiðir til að komast með sem mestan farangur í flug. Þar á meðal notað brjóstahaldara yfir skyrtu til að geyma nærföt og sokka. Segist hún ekki þola að borga fyrir farangur þegar hún er búin að næla sér í ódýrt flugfargjald og þess vegna hafi hún tekið upp á að prófa ýmsar aðrar leiðir.

Dickenson heldur úti vefsíðunni Cheap Holiday Expert þar sem hún fer yfir ýmis sparnaðarráð þegar kemur að ferðalögum. Deilir hún ráðum sínum einnig á Instagram-reikningi sínum, þar sem sjá má allt frá hvernig á að bóka ódýrustu gistinguna upp í hvernig á að koma með mestum farangri fyrir í flugi ef þú ert eingöngu með handfarangur.

Í einni færslunni sýnir hún þegar hún fór í flug og við fyrstu sýn virtist vera með engan annan farangur en bakpoka. Dickenson var hins vegar búin að klæða sig í brjóstahaldara sem var of stór á hana og troða ýmsum fatnaði í skálarnar. Önnur farangursráð hennar er að klæðast veiðivesti með fullt af vösum sem hún notaði til að geyma ýmsan fatnað og hluti, til að spara plássið í handfarangurstöskunni sinni, og að skipta út innvolsinu í ferðapúða fyrir léttan fatnað.

Dickenson segir í viðtali við CNN Travel að tilraunir hennar hafi þó gengið misvel. Mælir hún til dæmis ekki með því að prófa brjóstahaldararáðið, því það getur verið maus að fara í gegnum öryggisgæsluna og þurfa að klæða sig í og úr herlegheitunum. Hvetur hún hins vegar fólk til að nýta sér veiðivestið. Segir hún að það sé einstaklega hentugt fyrir ferðalög og að það sé ekkert mál að fara með vestið í gegnum öryggisgæsluna, því þetta sé í rauninni bara jakki. Hafi hún því komist auðveldlega í gegn. 

Dickenson bendir á að starfsmönnum öryggisgæslunnar sé sama um hversu mikinn farangur farið sé með þar í gegn, svo lengi sem ekkert ólöglegt sé með í för. Þess vegna ætti það ekki að vera neitt mál að nýta sér þessi ráð á ferðalögum.

mbl.is