Festust í hæsta kláfi í heimi í þrjá klukkutíma

Furðulegt á ferðalögum | 16. ágúst 2023

Festust í hæsta kláfi í heimi í þrjá klukkutíma

Ástralskur ferðalangur festist í þrjá tíma í hæsta kláfi í heimi á ferðalagi sínu um Víetnam. Kláfurinn, sem  liggur í um 3000 metra hæð, er staðsettur á Fansipan-fjallinu í norðurhluta Víetnam. 

Festust í hæsta kláfi í heimi í þrjá klukkutíma

Furðulegt á ferðalögum | 16. ágúst 2023

Ástralski ferðalangurinn virtist léttur í bragði yfir stöðunni.
Ástralski ferðalangurinn virtist léttur í bragði yfir stöðunni. Samsett mynd

Ástralskur ferðalangur festist í þrjá tíma í hæsta kláfi í heimi á ferðalagi sínu um Víetnam. Kláfurinn, sem  liggur í um 3000 metra hæð, er staðsettur á Fansipan-fjallinu í norðurhluta Víetnam. 

Ástralskur ferðalangur festist í þrjá tíma í hæsta kláfi í heimi á ferðalagi sínu um Víetnam. Kláfurinn, sem  liggur í um 3000 metra hæð, er staðsettur á Fansipan-fjallinu í norðurhluta Víetnam. 

Deildi hann ævintýrinu á TikTok-reikningi sínum, þar sem hann fer yfir stöðuna ásamt hópi ferðamanna sem var með honum í kláfinum. Í fyrstu stóð fólki skiljanlega ekki á sama um stöðuna þrátt fyrir að sá ástralski hafi reynt að lífga upp á stemmninguna. Segir hann meðal annars á einum tímapunkti að hann hafi loksins fundið hópinn sem hann myndi aldrei vilja festast í kláfi með. Það lifnar þó aðeins yfir hópnum með tímanum þótt augljóst sé að fólkinu líði ekki vel.

Eftir þrjá tíma kemst hópurinn loksins á fast land, þar sem starfsfólk biður hópinn innilegar afsökunar á óþægindunum. 

@fully.fledged Stuck in a cable car for 3 hours in a Vietnam, I don’t think I’m getting into a cable car ever again 🇻🇳 #f#fypf#foryouv#vietnam ♬ original sound - fully.fledged
mbl.is