Var eini farþeginn um borð eftir 18 tíma seinkun

Furðulegt á ferðalögum | 29. júní 2023

Var eini farþeginn um borð eftir 18 tíma seinkun

Ferðalangurinn Phil Stringer upplifði líklega besta flug lífs síns á dögunum þegar hann var eini farþeginn um borð í flugi sínu frá Oklahoma til Norður-Karólínu í Bandaríkjunum þann 26. júní síðastliðinn.

Var eini farþeginn um borð eftir 18 tíma seinkun

Furðulegt á ferðalögum | 29. júní 2023

Phil Stringer naut sín sem eini farþeginn um borð í …
Phil Stringer naut sín sem eini farþeginn um borð í flugi sínu með American Airlines. Samsett mynd

Ferðalangurinn Phil Stringer upplifði líklega besta flug lífs síns á dögunum þegar hann var eini farþeginn um borð í flugi sínu frá Oklahoma til Norður-Karólínu í Bandaríkjunum þann 26. júní síðastliðinn.

Ferðalangurinn Phil Stringer upplifði líklega besta flug lífs síns á dögunum þegar hann var eini farþeginn um borð í flugi sínu frá Oklahoma til Norður-Karólínu í Bandaríkjunum þann 26. júní síðastliðinn.

Fluginu, sem átti upphaflega að fara af stað á sunnudagsmorgninum, hafði verið seinkað vegna óveðurs sem varð til þess að meira en 9 þúsund flugferðum í Bandaríkjunum var aflýst eða seinkað síðastliðna helgi. Stringer segir frá því í myndbandi sem hann deildi á TikTok-reikningi sínum að eftir því sem brottförinni hafi oftar verið frestað hafi aðrir farþegar annað hvort endurbókað flug sitt eða gefist alveg upp. Stringer ákvað hins vegar að bíða.

Þegar vélin fór loks í loftið um 12 mínútur yfir miðnætti, um 18 tímum eftir áætlaðan brottfarartíma, var Stringer eini farþeginn um borð. Segist hann hafa fundið til með bæði flugvallarstarfsfólkinu og áhöfninni sem ræsa þurfti út til þess að þjónusta hann einan. Í myndbandinu sést þó að áhöfnin skemmti sér konunglega í þessu óhefðbundna flugi.

@phil.stringer 18-hour delay turned this flight into a private party! ✈️🥳 Watch how the amazing crew and I made the most of it! #americanairlines #flightattendant #airplanetiktok #privateparty #FlightFun #delayedflight #fyp #viral ♬ Makeba - Jain
mbl.is