Óöldin í Frakklandi í rénun

Frakkland | 5. júlí 2023

Óöldin í Frakklandi í rénun

Átök milli lögreglu og óeirðarseggja í Frakklandi voru minni í nótt en oft áður. Átta dagar eru nú liðnir síðan að franska lögreglan skaut unglinginn Nahel Merzouk til bana við almennt umferðareftirlit. Óeirðirnar sem fylgt hafa í kjölfarið eru þær verstu í Frakklandi í langan tíma.

Óöldin í Frakklandi í rénun

Frakkland | 5. júlí 2023

Slökkviliðsmaður slekkur eld sem kveiktur var í óöldinni í Frakklandi.
Slökkviliðsmaður slekkur eld sem kveiktur var í óöldinni í Frakklandi. AFP/Anna Kurth

Átök milli lögreglu og óeirðarseggja í Frakklandi voru minni í nótt en oft áður. Átta dagar eru nú liðnir síðan að franska lögreglan skaut unglinginn Nahel Merzouk til bana við almennt umferðareftirlit. Óeirðirnar sem fylgt hafa í kjölfarið eru þær verstu í Frakklandi í langan tíma.

Átök milli lögreglu og óeirðarseggja í Frakklandi voru minni í nótt en oft áður. Átta dagar eru nú liðnir síðan að franska lögreglan skaut unglinginn Nahel Merzouk til bana við almennt umferðareftirlit. Óeirðirnar sem fylgt hafa í kjölfarið eru þær verstu í Frakklandi í langan tíma.

Um 45 þúsund lögreglumenn voru á götum Frakklands sem viðbragð við óeirðunum, samkvæmt upplýsingum franska innanríkisráðuneytisins.

Einungis 16 voru handtekin í nótt, en til samanburðar má geta þess að um helgina voru 1.300 handtökur eina nóttina.

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sagði í gær að hann teldi hámarki óeirðanna hafi verið náð, en sagðist jafnframt vera varkár í því mati sínu.

mbl.is