Yfir sig ástfangin á Ítalíu

Ítalía | 10. október 2023

Yfir sig ástfangin á Ítalíu

Leikkonan Heather Graham er stödd í fríi á Ítalíu ásamt kærasta sínum, snjóbrettamanninum John de Neufville. Leikkonan er dugleg að ferðast og deilir gjarnan fallegum myndum frá ferðalögum sínum á samfélagsmiðlum og í þetta sinn birti hún ævintýralegar myndir frá Positano þar sem hún nýtur lífsins um þessar mundir. 

Yfir sig ástfangin á Ítalíu

Ítalía | 10. október 2023

Heather Graham er yfir sig ástfangin á Ítalíu.
Heather Graham er yfir sig ástfangin á Ítalíu. Samsett mynd

Leikkonan Heather Graham er stödd í fríi á Ítalíu ásamt kærasta sínum, snjóbrettamanninum John de Neufville. Leikkonan er dugleg að ferðast og deilir gjarnan fallegum myndum frá ferðalögum sínum á samfélagsmiðlum og í þetta sinn birti hún ævintýralegar myndir frá Positano þar sem hún nýtur lífsins um þessar mundir. 

Leikkonan Heather Graham er stödd í fríi á Ítalíu ásamt kærasta sínum, snjóbrettamanninum John de Neufville. Leikkonan er dugleg að ferðast og deilir gjarnan fallegum myndum frá ferðalögum sínum á samfélagsmiðlum og í þetta sinn birti hún ævintýralegar myndir frá Positano þar sem hún nýtur lífsins um þessar mundir. 

Graham, sem sló eftirminnilega í gegn í kvikmyndinni Austin Powers: The Spy Who Shagged Me, er í fantaformi og óhrædd við að deila sjóðheitum bikinímyndum frá hinum ýmsu heimshornum. 

Í gærdag deildi hún myndaröð frá ferðalagi sínu og de Neufville um þorpið við Amalfi-strönd. Myndaröðin sló heldur betur í gegn hjá tæplega 500.000 fylgjendum stjörnunnar á Instagram og voru flestir gáttaðir á unglegu yfirbragði Graham, en hún fagnaði 53 ára afmæli sínu í byrjun árs. 

„Heather lítur enn þá út fyrir að vera á þrítugsaldri,“ skrifaði einn aðdáandi leikkonunnar við færsluna. 


 

mbl.is