„Stundum þarf meira hugrekki til að lifa en að deyja“

Bókaland | 26. nóvember 2023

„Stundum þarf meira hugrekki til að lifa en að deyja“

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur leiðir lesendur á slóðir víkinga í Austur-Evrópu fyrir rúmum þúsund árum í nýjustu bók sinni Land næturinnar. Í sam­starfi Smart­lands og For­lags­ins tal­ar hún um nýj­ustu bók sína.  

„Fólk er að taka ýmis lyf, Ayahuasca til þess að fara í undirheimaferðir en það er alveg óþarfi. Fólk getur bara lesið Land næturinnar,“ segir Vilborg. 

Þorgerður Þorsteinsdóttir hefur lifað mikinn harm heima á Íslandi og heldur til Noregs þar sem örlögin senda hana í faðm skinnakaupmannsins Herjólfs. Saman halda þau til Garðaríkis, á fund væringja sem sigla suður Dnépurfljót og yfir Svartahaf með ambáttir og loðfeldi á markað í Miklagarði. Í landi næturinnar bíða þeirra launráð og lífsháski. Á augabragði er Þorgerður orðin ein meðal óvina og kemst að því að

„Stundum þarf meira hugrekki að lifa en deyja,“ segir Vilborg.  

Sagan hefst þar sem þar sem þræðinum sleppti í fyrri bókinni um Þorgerði, Undir Yggdrasil, en fyrir hana var Vilborg tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2021. Sögulegar skáldsögur hennar hafa notið mikilla vinsælda enda varpa þær nýju ljósi á líf og aðstæður kvenna í fortíðinni.

mbl.is