Lögreglan hættir að rannsaka Arctic Sea Farm

Fiskeldi | 21. desember 2023

Lögreglan hættir að rannsaka Arctic Sea Farm

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur hætt að rannsaka meint lögbrot Artic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) vegna slysasleppingar eldislax úr fiskeldisstöð í Patreksfirði í ágúst. Ekki var talinn grundvöllur til að halda rannsókninni áfram.

Lögreglan hættir að rannsaka Arctic Sea Farm

Fiskeldi | 21. desember 2023

Mat­væla­stofn­un fór fram á opinbera rannsókn eft­ir að til­kynnt var …
Mat­væla­stofn­un fór fram á opinbera rannsókn eft­ir að til­kynnt var um tvö göt á kví Arctif Sea Farm við Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur hætt að rannsaka meint lögbrot Artic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) vegna slysasleppingar eldislax úr fiskeldisstöð í Patreksfirði í ágúst. Ekki var talinn grundvöllur til að halda rannsókninni áfram.

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hefur hætt að rannsaka meint lögbrot Artic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) vegna slysasleppingar eldislax úr fiskeldisstöð í Patreksfirði í ágúst. Ekki var talinn grundvöllur til að halda rannsókninni áfram.

Frá þessu greinir lögreglan á Vestfjörðum í færslu á bandaríska miðlinum Facebook. Málið varðar meint brot á 22. gr. laga um fiskeldi nr. 71/2008 vegna slysasleppingar eldislax úr fiskeldisstöð í Kvígindisdal í Patreksfirði í ágúst.

Mat­væla­stofn­un fór fram á opinbera rannsókn vegna meintra brota Arctic Sea Farm á lög­um um fisk­eldi eft­ir að til­kynnt var um tvö göt á kví fyr­ir­tæk­is­ins við Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði.

„Með bréfi lögreglustjóra 19. desember [þriðjudag] var rannsókn hætt, þar sem ekki er talinn grundvöllur til að halda henni áfram, þar sem talið var að gögn málsins bæru ekki með sér að umbúnaður við kvína hafi verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis sakbornings og sakir séu miklar, í skilningi 22. gr. sömu laga, eins og áskilið er,“ skrifar lögreglan.

mbl.is