Hafa greint uppruna 298 eldislaxa

Fiskeldi | 22. desember 2023

Hafa greint uppruna 298 eldislaxa

Á þessu ári hafa 416 meintir eldislaxar borist til greiningar á uppruna hjá Hafrannsóknastofnun. Þar af hafa 298 verið greindir til uppruna, en 110 eru enn í greiningu. 

Hafa greint uppruna 298 eldislaxa

Fiskeldi | 22. desember 2023

Hafrannsóknastofnun hefur birt upplýsingar um stöðu greiningar á meintum eldislaxi …
Hafrannsóknastofnun hefur birt upplýsingar um stöðu greiningar á meintum eldislaxi á Íslandi. Ljósmynd/Sigurður Þorvaldsson

Á þessu ári hafa 416 meintir eldislaxar borist til greiningar á uppruna hjá Hafrannsóknastofnun. Þar af hafa 298 verið greindir til uppruna, en 110 eru enn í greiningu. 

Á þessu ári hafa 416 meintir eldislaxar borist til greiningar á uppruna hjá Hafrannsóknastofnun. Þar af hafa 298 verið greindir til uppruna, en 110 eru enn í greiningu. 

Þá hafa átta laxar af norskum uppruna með útlit eldislaxa ekki enn verið greindir til upprunastaðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Hafrannsóknastofnun sendi frá sér í dag.

Flestir raktir til kvíaþyrpingar í Patreksfirði

Í tilkynningunni, þar sem gerð er grein fyrir stöðu greiningar á meintum eldislaxi á Íslandi, segir að af samtals 306 greindum eldislöxum hafi 297 verið raktir til kvíaþyrpingar í Patreksfirði þar sem tilkynnt var um strok fyrr á þessu ári.

Jafnframt hafi einn eldislax sem veiðst hafi í Sunndalsá í Arnarfirði verið úr stroki úr kví í Arnarfirði. 

Af þeim 146 löxum sem síðast fóru í greiningu reyndust 11 þeirra vera villtir íslenskir laxar. Þar af voru tveir án eldiseinkenna en ekki var hægt að meta útlit hinna tveggja þar sem aðeins lífsýni þeirra bárust til Hafrannsóknastofnunar. 

Eldislaxar greindir í 46 veiðivötnum

Fram kemur í tilkynningunni að eldislaxar hafi nú verið greindir í 46 veiðivötnum (auk Patreksfjarðar) en í 59 veiðivötnum ef meintir strokulaxar í greiningu eru meðtaldir. 

Um þessar mundir er unnið að rakningu átta strokulaxa með erfðagreiningu fleiri viðmiðunarsýna frá þeim hængum sem notaðir hafa verið til undaneldis.

Eldislaxarnir sem ekki hefur tekist að rekja til framleiðenda veiddust í Hvítá í Borgarfirði, Patreksfirði, Hvannadalsá, Hrútafjarðará, Miðfjarðará, Laxá á Refasveit, Geirlandsá og Kálfá.

mbl.is