Eskja og Úthafsskip meðal nýrra hluthafa Geosalmo

Fiskeldi | 22. desember 2023

GeoSalmo hefur lokið tveggja milljarða króna fjármögnun með þátttöku norskra, sænskra, íslenskra og hollenskra fjárfesta. „Þessi niðurstaða gerir félaginu, sem undirbýr uppbyggingu hátæknilandeldis á laxi, kleift að hefja þegar í stað framkvæmdir við fiskeldisstöðvar sínar við Þorlákshöfn ásamt því að halda áfram þeirri kröftugu þróun sem félagið hefur unnið að á undanförnum misserum,“ að því er segir í fréttatilkynningu.

Fyrsti áfangi landeldisstöðvar Geo Salmo í Ölfusi mun framleiða 7.300 …
Fyrsti áfangi landeldisstöðvar Geo Salmo í Ölfusi mun framleiða 7.300 tonn af laxi á ári. Mynd/Geo Salmo

GeoSalmo hefur lokið tveggja milljarða króna fjármögnun með þátttöku norskra, sænskra, íslenskra og hollenskra fjárfesta. „Þessi niðurstaða gerir félaginu, sem undirbýr uppbyggingu hátæknilandeldis á laxi, kleift að hefja þegar í stað framkvæmdir við fiskeldisstöðvar sínar við Þorlákshöfn ásamt því að halda áfram þeirri kröftugu þróun sem félagið hefur unnið að á undanförnum misserum,“ að því er segir í fréttatilkynningu.

GeoSalmo hefur lokið tveggja milljarða króna fjármögnun með þátttöku norskra, sænskra, íslenskra og hollenskra fjárfesta. „Þessi niðurstaða gerir félaginu, sem undirbýr uppbyggingu hátæknilandeldis á laxi, kleift að hefja þegar í stað framkvæmdir við fiskeldisstöðvar sínar við Þorlákshöfn ásamt því að halda áfram þeirri kröftugu þróun sem félagið hefur unnið að á undanförnum misserum,“ að því er segir í fréttatilkynningu.

Fram kemur að meðal fjárfesta sem koma nýir að verkefninu núna eru Skel fjárfestingafélag, eigendur sjávarútvegsfélagsins Eskju og Úthafsskip ásamt norsku iðnaðarsamsteypunni Endúr ASA og tengdum aðilum og hollenska fiskvinnslu- og dreifingarfyrirtækinu Adri & Zoon.

GeoSalmo áformar byggingu 24.000 tonna fiskeldisstöðvar í Ölfusi, við Þorlákshöfn. Félagið hefur þegar lokið umhverfismati og skipulagsvinnu auk þess að hafa gert samning við Orku Náttúrunnar um 28 megawött af rafmagni til langs tíma fyrir alla uppbyggingu landeldistöðvarinnar og fullan rekstur hennar.

Mikilvægur áfangi

„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur og tryggir félaginu fjármagn til að taka næstu skref á vegferð þess. Við erum gríðarlega ánægð með þann hóp fjárfesta sem kemur að verkefninu núna og þeirra reynsla og tengsl munu nýtast okkur afskaplega vel í uppbyggingu verkefnis okkar, „segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri Geo Salmo, í tilkynningunni.

„Þetta sýnir jafnframt trú fjárfesta á okkar sýn á landeldi, tækni okkar og teymi,“ segir hann.

Í stjórn félagsins koma inn, eftir hlutafjáraukninguna, Pål Reiulf Olsen, stjórnarformaður Endúr og reyndur norskur stjórnarmaður tengdur fiskeldi, iðnaði og fjármálamörkuðum og Marinella Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Úthafsskipa. Munu þau skipa stjórn félagsins ásamt stofnanda og aðaleiganda GeoSalmo, Aðalsteini Jóhannssyni.

Jens Þórðarson.
Jens Þórðarson. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is