Gat fannst á kví Arctic Fish

Fiskeldi | 2. febrúar 2024

Gat fannst á kví Arctic Fish

Gat fannst á einni kví Arctic Fish í Dýrafirði 31. janúar. Ekki er grunur um strok úr kvínni. Fiskistofa mun af þeim sökum ekki aðhafast frekar.

Gat fannst á kví Arctic Fish

Fiskeldi | 2. febrúar 2024

Arctic Fish er með eldi í nokkrum fjörðum Vestfjarða.
Arctic Fish er með eldi í nokkrum fjörðum Vestfjarða. mbl.is/Helgi Bjarnason

Gat fannst á einni kví Arctic Fish í Dýrafirði 31. janúar. Ekki er grunur um strok úr kvínni. Fiskistofa mun af þeim sökum ekki aðhafast frekar.

Gat fannst á einni kví Arctic Fish í Dýrafirði 31. janúar. Ekki er grunur um strok úr kvínni. Fiskistofa mun af þeim sökum ekki aðhafast frekar.

Orsök gatsins var reipi sem heldur uppi botnhring í kvínni. Nuddaðist það við netapoka með tilheyrandi afleiðingum. 

Í tilkynningu á vef Arctic Fish segir að öll atvik sem gætu leitt til stroks séu tekin alvarlega og að öllum viðeigandi yfirvöldum hafi verið tilkynnt um málið.

Þá voru allar kvíar félagsins skoðaðar til þess að staðfesta að sambærileg atvik hafi ekki átt sér stað á öðrum staðsetningum. 

Líkur á stroki hverfandi

Miðað við stærð gatsins (30x10cm) og að við skoðun hafi hvorki sést til, né veiðst fiskur eru líkur á stroki taldar hverfandi.

Enn fremur segir í tilkynningu að á þessum árstíma haldi fiskurinn sig almennt lægra en staðsetning gatsins (tveggja metra dýpi), sökum kulda sjósins og sökum neðansjávarljósa sem fiskurinn laðast að í kvíunum. 

mbl.is