Arctic Fish fær aukið leyfi til eldis í Djúpinu

Fiskeldi | 1. mars 2024

Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) nýtt rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi. Hækkar því heimild félagsins til eldis á laxi og regnbogasilungi í firðinum úr 5.300 tonna hámarkslífmassa í átta þúsund tonn.

Leyfilegur hámarkslífmassi sem Arctic Fish má vera með í sjókvíum …
Leyfilegur hámarkslífmassi sem Arctic Fish má vera með í sjókvíum sínum í Ísafjarðardjúpi eykst úr 5.300 tonnum í 8.000 tonn. mbl.is/Helgi Bjarnason

Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) nýtt rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi. Hækkar því heimild félagsins til eldis á laxi og regnbogasilungi í firðinum úr 5.300 tonna hámarkslífmassa í átta þúsund tonn.

Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm ehf. (Arctic Fish) nýtt rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi. Hækkar því heimild félagsins til eldis á laxi og regnbogasilungi í firðinum úr 5.300 tonna hámarkslífmassa í átta þúsund tonn.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Matvælastofnunar. Þar segir að af þessum átta þúsund tonna hámarkslífmassa má Arctic Fish að hámarki vera með 5.200 tonn af frjóum laxi.

„Matvælaráðuneytið hefur birt burðarþolsmat og áhættumat erfðablöndunar fyrir fiskeldi á Íslandi. Burðarþolsmat Ísafjarðardjúps er metið 30.000 tonn og heimilar áhættumat erfðablöndunar 12.000 tonna hámarkslífmassa af frjóum laxi í Djúpinu,“ segir í tilkynnignunni.

Fór sramkvæmd Arctic Fish í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en kærufrestur er einn mánuður.

mbl.is