Leggur áherslu á að klára eldisfrumvarp

Fiskeldi | 25. janúar 2024

Leggur áherslu á að klára eldisfrumvarp

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kveðst í samtali við Morgunblaðið í dag leggja áherslu á að frumvarp að nýjum heildarlögum fyrir eldis- og ræktunargreinar verði klárað og lagt fyrir Alþingi. Segist hún þurfa að forgangsraða verkefnum á meðan hún gegnir störfum matvælaráðherra sem er í veikindaleyfi.

Leggur áherslu á að klára eldisfrumvarp

Fiskeldi | 25. janúar 2024

Katrín Jakobsdóttir kveðst þurfa að forgangsraða í hlutverki matvælaráðherra og …
Katrín Jakobsdóttir kveðst þurfa að forgangsraða í hlutverki matvælaráðherra og leggur áherslu á að ljúka vinnu við eldisfrumvarp. mbl.is/Árni Sæberg

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kveðst í samtali við Morgunblaðið í dag leggja áherslu á að frumvarp að nýjum heildarlögum fyrir eldis- og ræktunargreinar verði klárað og lagt fyrir Alþingi. Segist hún þurfa að forgangsraða verkefnum á meðan hún gegnir störfum matvælaráðherra sem er í veikindaleyfi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kveðst í samtali við Morgunblaðið í dag leggja áherslu á að frumvarp að nýjum heildarlögum fyrir eldis- og ræktunargreinar verði klárað og lagt fyrir Alþingi. Segist hún þurfa að forgangsraða verkefnum á meðan hún gegnir störfum matvælaráðherra sem er í veikindaleyfi.

„Ég er búin að biðja um að lokið verði við að vinna úr umsögnum og sé það fyrir mér að í kjölfarið verði fundað með helstu hagaðilum um það mál og kannað hvernig þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu í kjölfar umsagna munu mælast fyrir. Ég mun vinna að því og forgangsraða því að þetta mál komi fram,“ segir Katrín.

Spurð hvort það geti farið svo að frumvarpið að nýjum heildarlögum fyrir sjávarútveginn verði ekki afgreitt fyrir þinglok í vor svarar Katrín:

„Það er alveg ljóst að veikindi ráðherrans setja ákveðið strik í reikninginn. Ég tek þessa vakt á meðan og verð að forgangsraða málum. [...] Hvort frumvarpið kemur núna fram, það er stefnt að því að þetta verði lagt fram á þessu þingi en síðan verða þær línur bara að skýrast – hvenær það nákvæmlega verður,“ svarar Katrín.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is