Ætla að landa í Grindavík á morgun

Raddir Grindvíkinga | 22. febrúar 2024

Ætla að landa í Grindavík á morgun

Jóhann Vignir Gunnarsson, yfirmaður landvinnslu hjá Þorbirni, gerir ráð fyrir því að landað verði á morgun og fiskur tekinn í vinnslu en köldu vatni verður hleypt á hafnarsvæðið í Grindavík í dag.

Ætla að landa í Grindavík á morgun

Raddir Grindvíkinga | 22. febrúar 2024

Jóhann Vignir Gunnarsson í Grindavík í morgun.
Jóhann Vignir Gunnarsson í Grindavík í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhann Vignir Gunnarsson, yfirmaður landvinnslu hjá Þorbirni, gerir ráð fyrir því að landað verði á morgun og fiskur tekinn í vinnslu en köldu vatni verður hleypt á hafnarsvæðið í Grindavík í dag.

Jóhann Vignir Gunnarsson, yfirmaður landvinnslu hjá Þorbirni, gerir ráð fyrir því að landað verði á morgun og fiskur tekinn í vinnslu en köldu vatni verður hleypt á hafnarsvæðið í Grindavík í dag.

Hann segir að smá tíma taki þó fyrir hlutina til að komast aftur í eðlilegt horf. 

„Við erum búnir að vera að vinna hérna einhverja daga í janúar og febrúar og byrjuðum af fullum krafti á mánudaginn,” segir Jóhann Vignir, sem ræddi við blaðamann í Grindavík í morgun.

Hann segir að kalda vatnið muni skipta sköpum fyrir starfsemi fyrirtækisins en hingað til hefur afurðum sem hafa verið í salti eingöngu verið pakkað niður en ekkert vatn þarf í þá starfsemi.

Hluti starfsmanna ekki snúið aftur

Um 35 til 40 manns eru að störfum núna í landvinnslunni hjá Þorbirni. Hluti starfsmannanna fór erlendis þegar starfsemin hætti í kjölfar jarðhræringanna í bænum og hafa þeir ekki snúið aftur.

Jóhann Vignir, sem er Grindvíkingur, svaf heima hjá sér í nótt og kveðst ætla að búa áfram í bænum.

mbl.is