NoName057 réðst á rafræn skilríki í Danmörku

Rússland | 29. febrúar 2024

NoName057 réðst á rafræn skilríki í Danmörku

Hakkarahópur hliðhollur Rússum segist hafa gert árás á rafræn skilríki í Danmörku en skilríkjaþjónustan lá niðri í dag. Hópurinn hefur áður gert árás á íslenska innviði.

NoName057 réðst á rafræn skilríki í Danmörku

Rússland | 29. febrúar 2024

Hópurinn gerði árás á íslenska netinviði í maí, þegar leiðtogafundur …
Hópurinn gerði árás á íslenska netinviði í maí, þegar leiðtogafundur Evrópuráðs var haldinn í Hörpu. Samsett mynd

Hakkarahópur hliðhollur Rússum segist hafa gert árás á rafræn skilríki í Danmörku en skilríkjaþjónustan lá niðri í dag. Hópurinn hefur áður gert árás á íslenska innviði.

Hakkarahópur hliðhollur Rússum segist hafa gert árás á rafræn skilríki í Danmörku en skilríkjaþjónustan lá niðri í dag. Hópurinn hefur áður gert árás á íslenska innviði.

MitID, dönsk rafræn skilríki, virkar aðeins endrum og eins í augnablikinu, að því er fram kemur í frétt danska netmiðilsins BT. Hvorki var hægt að nota MitID-appið né vefsíðuna um hríð. Að því er virðist er vefsíðan að mestu leyti komin í lag.

„Við getum séð að þetta er árás – Nets, veitan okkar, vinnur nú í vandamálinu,“ hefur danski miðillinn eftir Digitaliseringsstyrelsen, opinberri stofnun sem sér um MitID-þjónustuna.

NoName057(16) lýsti yfir ábyrgð á árásunum á Telegram.
NoName057(16) lýsti yfir ábyrgð á árásunum á Telegram. Skjáskot/Telegram

Hafa ráðist á íslenska innviði

NoName057(16), hópur rússneskra hakkarra, lýsir sér ábyrgum á upphlaupinu, að því kemur fram í færslu hópsins á samfélagsmiðlinum Telegram.

Sömu netþrjótar stóðu á bak við netárás á Kaupmannahafnarflugvöll og á netinnviði sveitarfélagsins Týsstaðar á Norður-Jótlandi á sunnudag.

Hópurinn gerði einnig netárásir á ís­lensk­ar vefsíður þegar leiðtoga­fundur Evrópuráðsins var haldinn í Hörpu í maí 2023.

Árásirnar voru svo­kallaðar álags­árás­ir (DDoS) en fjöl­marg­ir vef­ir lágu niðri um tíma, m.a. vef­ur Alþing­is og Isa­via.

mbl.is