Grindvíkingar fá forgang að lóðum í Þorlákshöfn

Grindvíkingar fá forgang að lóðum í Þorlákshöfn

Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti forgang íbúa Grindavíkur við úthlutun lóða á fundi sínum í gær. Stefnt er að því að úthluta lóðum í Þorlákshöfn fyrir allt að 127 heimili á næstu mánuðum.

Grindvíkingar fá forgang að lóðum í Þorlákshöfn

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 1. mars 2024

Þorlákshöfn.
Þorlákshöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti forgang íbúa Grindavíkur við úthlutun lóða á fundi sínum í gær. Stefnt er að því að úthluta lóðum í Þorlákshöfn fyrir allt að 127 heimili á næstu mánuðum.

Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti forgang íbúa Grindavíkur við úthlutun lóða á fundi sínum í gær. Stefnt er að því að úthluta lóðum í Þorlákshöfn fyrir allt að 127 heimili á næstu mánuðum.

„Fyrir liggur að á seinustu vikum hefur umtalsverður fjöldi Grindvíkinga leitað eftir lóðum í Þorlákshöfn. Í öllum tilvikum hefur verið leitað eftir einbýlishúsa- og eða parhúsalóðum sem fólk hefur hug á að byggja sjálft á. Sveitarfélagið Ölfus vill með öllum leiðum sýna nágrönnum sínum stuðning og leggur áherslu á að sá vilji sjáist í verki,” segir í tilkynningunni.

„Með það að leiðarljósi að styðja við Grindvíkinga á tímum náttúruhamfara samþykkir bæjarstjórn eftirfarandi: Stefnt er að því að auglýsa næsta áfanga við svokallað Vesturberg í mars. Þar er um að ræða lóðir fyrir 10 einbýlishús, 10 parhús, og 1 raðhús. Alls verða þar því lausar lóðir fyrir 33 íbúðir. Hægt verður að hefja byggingarframkvæmdir á þessum lóðum í apríl. Bæjarstjórn samþykkir að veita fólki með lögheimili í Grindavík forgang að þessum lóðum,” segir þar jafnframt.

Bæta við lóðum ef umframeftirspurn verður

Verði umframeftirspurn við úthlutunina mun sveitarfélagið ráðast tafarlaust í undirbúning næsta áfanga við Vesturberg og auglýsa þær lóðir á sömu forsendum.

Þar gæti orðið mögulegt að úthluta lóðum fyrir allt að 13 einbýlishús og 7 parhús eða samtals 27 íbúðir.

Í heildina gæti því orðið um að ræða lóðir fyrir allt að 60 heimili sem yrðu tilbúnar til framkvæmda á næstu mánuðum.

Verði enn áfram eftirspurn eftir lóðum eftir úthlutun þessara lóða verður frekari framkvæmdum flýtt enn frekar og stefnt að því að sem fyrst verði hægt að úthluta til viðbótar allt að 18 einbýlishúsalóðum 9 raðhúsalóðum og 9 parhúsalóðum. Þar verði því um að ræða 67 íbúðir.

Samtals verði því mögulegt að úthluta lóðum fyrir allt að 127 íbúðir eins fljótt og mögulegt er.

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi.
Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi. mbl.is/Árni Sæberg

Lík samfélög

„Staðan í Grindavík er fordæmalaus og það kallar á fordæmalausar ákvarðanir. Áður höfum við samþykkt formlega að veita íbúum Grindavíkur allan rétt til samræmis við íbúa hér hvað varðar leikskólapláss, grunnskólavisst, íbúðir aldraðra og fl. Nú teljum við húsnæðismál til lengri tíma brýnust,” segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í tilkynningunni.

„Grindavík og Þorlákshöfn eru um margt lík samfélög. Þetta eru samfélög sem trúa því af einlægni að verðætasköpun sé undirstaða velferðar. Rekstur sveitarfélagsins hér er því traust og innviðir sterkir, eins og lengi hefur verið í Grindavík. Fyrirtækjum í og við Þorlákshöfn fjölgar hratt og við erum núna með í undirbúningi byggingu á nýjum leikskóla, stækkun grunnskóla, byggingu knattspyrnuhúss, menningarsal, nýjan miðbæ og margt fl. Í þeirri stöðu teljum við sanngjarnt og eðlilegt að gera allt sem við getum til að bjóða okkur sem valkost fyrir Grindvíkinga.“

mbl.is