Strandvarðastjarna rakaði af sér hárið

Instagram | 15. mars 2024

Strandvarðastjarna rakaði af sér hárið

Bandaríska leikkonan Nicole Eggert, sem sló eftirminnilega í gegn í hlutverki sínu sem Summer Quinn í þáttaröðinni Strandvörðum, tilkynnti í byrjun árs að hún hafi greinst með sjaldgæft afbrigði brjóstakrabbameins, kallað cribriform carcinoma.

Strandvarðastjarna rakaði af sér hárið

Instagram | 15. mars 2024

Leikkonan Nicole Eggert átti sína dýrðardaga á átt­unda og ní­unda …
Leikkonan Nicole Eggert átti sína dýrðardaga á átt­unda og ní­unda ára­tugn­um og þá aðallega í sjón­varpsþátt­un­um Strandverðir, Who's The Boss og Char­les in Char­ge. Samsett mynd

Bandaríska leikkonan Nicole Eggert, sem sló eftirminnilega í gegn í hlutverki sínu sem Summer Quinn í þáttaröðinni Strandvörðum, tilkynnti í byrjun árs að hún hafi greinst með sjaldgæft afbrigði brjóstakrabbameins, kallað cribriform carcinoma.

Bandaríska leikkonan Nicole Eggert, sem sló eftirminnilega í gegn í hlutverki sínu sem Summer Quinn í þáttaröðinni Strandvörðum, tilkynnti í byrjun árs að hún hafi greinst með sjaldgæft afbrigði brjóstakrabbameins, kallað cribriform carcinoma.

Eggert, 52 ára, hefur leyft fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast með baráttu sinni við þennan erfiða sjúkdóm. Hún birtir regluleg myndskeið þar sem hún talar um eigin líðan, meðferðir og hvaða einkenni hún er að upplifa.

Á fimmtudag sýndi hún frá því þegar hún rakaði af sér hárið. Undir spilaði lagið Fight for Your Right með hljómsveitinni Beastie Boys. Eggert rakaði mest allt af sjálf en dóttir leikkonunnar kom í lokin og hjálpaði henni að ljúka við verkið.

Frægðarsól leik­kon­unn­ar hef­ur ekki skinið skært síðustu ár, en Eggert átti sína dýrðardaga á átt­unda og ní­unda ára­tugn­um og þá aðallega í sjón­varpsþátt­un­um Strandverðir, Who's The Boss og Char­les in Char­ge. Síðasta hlut­verk Eggert sam­kvæmt IMDb var tal­setn­ing í ein­um þætti af Ro­bot Chicken árið 2019.

mbl.is