Sky fréttastöðin hefur eftir heimildarmönnum sínum að maðurinn sem lögregla skaut til bana á Stockwell-brautarstöðinni í London morgun sé ekki einn af mönnunum fjórum sem lögreglu grunar að hafi staðið fyrir sprengingum í lestum og strætisvagni borginni í gær.
Lögregla hefur verið með aðgerðir á að minnsta kosti þremur öðrum stöðum í borginni í tengslum við sprengjutilræðin í gær þar sem sprengjur voru sprengdar í þremur neðanajarðarlestum og einum strætisvagni. M.a. gerði hún húsleit á Netkaffihúsi við Harrow Road og var íbúum við götuna skipað að halda sig innandyra á meðan.