Fimm lögreglumenn voru í dag dæmdir í fimm til sjö ára fangelsi í Kazakstan fyrir þeirra þátt í óeirðum í desember sem kostuðu 15 manns lífið.
Fjórir mannanna voru háttsettir innan lögreglunnar. Óeirðirnar brutust út í kjölfar mótmæla í bænum Zhanaozen en þar var verið að krefjast hærri launa.