„Veistu hver ég er?“

„Veistu hver ég er?“ segir á auglýsingaspjaldi kvikmyndarinnar Welcome to New York sem er frumsýnd í Cannes í dag. Á myndinni sést jakkafataklæddur karlmaður í handjárnum í kastljósi fjölmiðla með New York í baksýn.

Um er að ræða kvikmynd byggða á tímabili í lífi fyrrverandi framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Dominique Strauss-Kahn, en hann var handtekinn og ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þernu á hóteli í New York fyrir þremur árum. Fallið var frá ákærunni en þá var hann búinn að segja upp starfi sínu og draumur um að verða næsti forseti Frakklands að engu orðinn. Strauss-Kahn greiddi þernunni háar skaðabætur og hefur síðan þá átt í málaferlum í tengslum við kynlífshneyksli í heimalandinu, Frakklandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert