Tveggja daga vopnahlé í Daara

Sýrlenskir hermenn í borginni Raqa.
Sýrlenskir hermenn í borginni Raqa. AFP

Sýrlenski herinn hefur lýst yfir 48 klukkustunda vopnahléi í borginni Daara í suðurhluta landsins. Harðir bardagar hafa geisað þar síðustu daga.

Í yfirlýsingu kemur fram að vopnahléið hafi tekið gildi á hádegi að staðartíma „vegna stuðnings við friðarumleitanir“.

Samtökin Syrian Observatory for Human Rights, segja að ró hafi komið yfir borgina í kjölfar vopnahlésins.

Daara er á einu af þeim svæðum sem Rússar, Íranir og Tyrkir samþykktu að dregið yrði úr átökum, samkvæmt áætlun þeirra.

Þrátt fyrir það hafa bardagarnir verið harðir þar síðustu vikur en uppreisnarmenn ráða yfir um 60% af borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert