Fimm létust og í það minnsta fimm særðust þegar byssumaður skaut inn í hóp fólks sem var að yfirgefa guðsþjónustu í Dagestan-héraði í Kákasus-fjöllum Rússlandi fyrr í dag.
Atvikið átti sér stað í þorpinu Kizlyar. Árásarmanninum er lýst sem 22 ára heimamanni. Hann var skotinn til bana af lögregluþjónum sem komu fljótlega á vettvang.
Auk hans féllu tveir lögregluþjónar og tveir óbreyttir borgarar. Ríki íslams hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni.
Dagestan á landamæri að Tsjetsjeníu en stjórnvöld í Moskvu hafa tvívegis háð stríð gegn uppreisnarmönnum þar síðan Sovétríkin liðuðust í sundur.