Norska olíu- og álframleiðslufyrirtækið Norsk Hydro hefur viðurkennt að hafa valdið umhverfismengun þegar mengað og óhreinsað affallsvatn rann úr álverksmiðjunni Alunorte í Pará í Norður-Brasilíu. Í vatninu var meðal annars báxít sem litaði vatnið rautt.
Atvikið er rakið til 16. og 17. febrúar þegar gríðarlega miklar rigningar urðu í nágrenni Barcarena iðnaðarsvæðisins. Í fyrstu neitaði fyrirtækið að hafa valdið menguninni þegar íbúar og stjórnvöld kvörtuðu yfir mengun á svæðinu.
„Við losuðum óhreinsað yfirborðsvatn í Pará. Þetta er algjörlega óásættanlegt og brýtur í bága við allt sem Hydro stendur fyrir. Fyrir hönd fyrirtækisins bið ég persónulega allt samfélagið og stjórnvöld afsökunar,“ segir Svein Richard Brandtzae, framkvæmdastjóri Norsk Hydro, í tilkynningu.
Stjórnvöld í Brasilíu sektuðu Norsk Hydro um 2,5 milljónir evra eða um 300 milljónir króna. Mengunarinnar varð vart í neysluvatni og hefur áhrif á lífríki í Amazon-fljótinu. Verksmiðjan Alunorte er ein sú stærsta í heimi.
Árum saman hafa íbúar í nágrenni Barcarena-iðnaðarsvæðisins kvartað yfir því að þetta álver og aðrar verksmiðjur á svæðinu mengi neysluvatn þeirra.