Danir hafa verið í svitabaði síðustu vikur vegna hitanna þar í landi og svo verður áfram því nú er því spáð að næturnar fari að hitna enn frekar. Von er á 20 stiga hita að nóttu og 28 stiga hita að degi um allt landið. Svo heitt verður að talað er um að hitabeltisnætur séu í uppsiglingu. Slíkt gerist síðsumars þegar hátt hitastig hefur verið viðvarandi.
Í frétt danska ríkisútvarpsins um málið segir að á daginn geti hitinn vel farið yfir 30 stig og að næturhitinn verði mestur við ströndina.
Óvenju heitt hefur verið í Skandinavíu síðustu vikur. Hitabylgjunni hafa fylgt miklir þurrkar.