„Við finnum vel fyrir hræðslu hjá fólki,“ segir Dagný Þorláksdóttir en hún býr ásamt kærasta sínum á indónesísku eyjunni Balí. Jarðskjálfti, 6,9 að stærð, reið yfir á næstu eyju við Balí, Lombok, í gær. Tvær vikur eru frá því mannskæður jarðskjálfti reið yfir á Lombok og varð sá yfir 400 manns að bana.
Annar skjálfti varð á eyjunni fyrr í gær, en sá var minni eða af stærðinni 6,3. Skjálftinn sem varð 5. ágúst mældist 6,9 að stærð og jafnaði hann tugþúsundir heimila við jörðu um gjörvalla eyjuna. Tugir þúsunda slösuðust í skjálftanum.
Dagný segir að hún finni vel fyrir skjálftunum og almennt sé fólk mjög stressað. „Þó að það komi ekki nema lítill skjálfti þá grípur um sig mikill ótti,“ segir Dagný en hún hefur búið í bænum Seminyak á Balí undanfarna átta mánuði.
Hún hefur ekki tekið eftir neinum skemmdum í Seminyak vegna skjálftanna en reynir þó að koma sér út úr húsi þegar hún finnur fyrir skjálfta vegna þess að húsin eru ekki þau traustustu.
„Einnig er talað um mögulega flóðahættu og fólk er beðið um að hafa áætlun vegna þess. Flestir eru frekar rólegir yfir því,“ segir Dagný og bætir við að ástandið á Lombok sé allt annað:
„Þar er allt í rúst og stutt í að rigningartímabilið byrji þannig að þeir geta ekki hafið endurbyggingu húsa fyrr en á næsta ári. Vinur minn býr þar með konu og tveimur börnum í tjaldi en þorpið þeirra varð fyrir mikilli eyðileggingu.“