Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna í gær að líklega yrði haldinn annar leiðtogafundur hjá honum og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu. Trump sagði ekkert um hvar eða hvenær sá fundur yrði haldinn.
Trump og Kim funduðu í Singapúr 12. júní en það var í fyrsta skipti sem leiðtogar Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hittast.
„Ég stöðvaði kjarnorkutilraunir þeirra. Ég stöðvaði þróun langdrægra eldflauga. Japanar eru í skýjunum. Hvað gerist? Við sjáum til,“ sagði Trump.
Trump hrósaði Kim þegar þeir hittust fyrr í sumar og sagði að leiðtogi Norður-Kóreu yrði að líta út fyrir að vera „harður karl“. Trump sagði að Kim væri klár, elskaði fólkið sitt, landið sitt og vildi gera góða hluti.