Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt að héðan í frá verði mökum samkynhneigðra ríkiserindreka og fulltrúa Sameinuðu þjóðanna neitað um landvistarleyfi. Bannið tók gildi í gær, mánudag, en þeir makar sem nú eru staddir í Bandaríkjunum hafa frest til 31. desember til að yfirgefa landið, ganga í hjónaband eða sækja um annars konar landvistarleyfi.
Að því er segir á vef BBC hafa sams konar lög gilt um maka gagnkynhneigðra ríkiserindreka og starfsmanna SÞ frá 2009.
Hjónaband samkynhneigðra er viðurkennt í 25 löndum í heiminum, en er enn ólöglegt í 71 landi.
Bandaríkin tilkynntu um breytinguna í minnisblaði til Sameinuðu þjóðanna.
Starfsmenn alþjóðlegra stofnana, og nánasta fjölskylda þeirra, fá svokallað G-4 landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Hjónaband er skilyrði fyrir því að makar erindreka fái leyfið, en hingað til hafði undantekning verið gerð vegna samkynhneigðra, sem margir hverjir hafa ekki kost á að gifta sig í heimalandinu.