Hvíta húsið hefur varið ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta sem afboðaði komu sína til minningarathafnar um fallna bandaríska hermenn í fyrri heimsstyrjöld sem fram fór í Ains-Marne-kirkjugarðinum í Frakklandi á laugardag.
Trump var í Frakklandi vegna afmælis fyrri heimsstyrjaldarinnar. Hann afboðaði komu sína í minningarathöfnina vegna rigningar.
Hvíta húsið greindi frá því að þyrla forsetans hefði ekki getað flogið vegna slæmra aðstæðna en skyggni var afar slæmt.
„Forsetinn vildi ekki trufla borgina með stuttum fyrirvara,“ sagði Sarah Sanders, upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, um ástæðu þess að forsetinn fór ekki akandi í kirkjugarðinn sem er 96 kílómetra norðan við París.
Trump var gagnrýndur fyrir að láta ekki sjá sig og bent var á að Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefði ferðast 188 kílómetra í rigningunni.
They died with their face to the foe and that pathetic inadequate @realDonaldTrump couldn’t even defy the weather to pay his respects to The Fallen #hesnotfittorepresenthisgreatcountry
— Nicholas Soames (@NSoames) November 10, 2018
Meðal þeirra sem gagnrýndu forsetann er Nicholas Soames, þingmaður breska Íhaldsflokksins og barnabarn Winston Churchill, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. „Þeir [hermennirnir] létu lífið í viðureign við óvin sinn og hinn aumkunarverði Donald Trump gat ekki einu sinni mætt veðrinu til að votta þeim virðingu sína,“ ritaði hann á Twitter.