Lögregla í Hollandi greinir frá því að hún hafi stöðvað för ökumanns, sem ók um um hraðbraut í grennd við borgina Eemnes bæði sofandi og drukkinn. Fjallað er um málið á vef Sky News, en lögreglan greindi frá þessu atviki á Instagram.
Ökumaðurinn var á Tesla-bifreið og var með sjálfstýringuna í gangi. Er lögreglumenn óku nærri manninum veittu þeir því eftirtekt að hann virtist vera sofandi við stýrið.
Lögreglumennirnir hægðu á sér og þá byrjaði Tesla-bifreiðin að þokast fram úr lögreglunni sem greip til þess ráðs að vekja ökumanninn með sírenuvæli.
Samkvæmt lögreglu virtist maðurinn vera ölvaður og missti hann bílprófið í kjölfar þessa svefn- og ölvunaraksturs.
View this post on InstagramA post shared by Landelijke Eenheid Noordwest (@pol_infranw) on May 17, 2019 at 4:38am PDT