Óttast er að nærri sjötíu manns hafi látist í Japan eftir að fellibylurinn Hagibis gekk yfir landið á laugardag. Staðfest er að 58 eru látnir en 15 er enn saknað og því er óttast að tala látinna sé nær sjötíu manns, að því er NHK-sjónvarpsstöðin greinir frá.
Rúmlega hundrað þúsund japanskir björgunarmenn, þar af um 30.000 hermenn, reyna nú þriðja daginn í röð að finna fólk á lífi í rústum húsa sem urðu illa úti vegna flóða, aurskriða og ofsavinds vegna Hagibis. Byrjað er að rigna á ný sem gerir björgunarmönnum erfitt fyrir.
Fellibylurinn er með þeim öflugustu sem farið hafa yfir Japan í um sextíu ár. Vindhraði náði mest 60 metrum á sekúndu en það var ekki síst úrkoman sem olli tjóni, en hún mældist um 900 mm, sem er meiri en samanlögð heildarúrkoma í Reykjavík á meðalári, sem er tæpir 800 mm.