Margir geta hugsað sér Trump-ættarveldi

Ivanka Trump sést hér fyrir aftan föður sinn Donald. 16% …
Ivanka Trump sést hér fyrir aftan föður sinn Donald. 16% kjósenda Repúblikanaflokksins gætu hugsað sér að kjósa hana sem forseta árið 2024. AFP

Nokkuð hátt hlutfall þeirra sem eru líklegir til þess að kjósa Repúblikanaflokkinn í Bandaríkjunum væru tilbúnir til þess að kjósa börn Donalds Trump Bandaríkjaforseta í forsetaembættið árið 2024, fái þau möguleikann á því. Eða þannig er staðan hið minnsta í dag, samkvæmt skoðanakönnun sem bandaríski vefmiðillinn Axios lét framkvæma fyrir jól.

Þar kemur fram að 29% stuðningsmanna repúblikana sem tóku þátt í könnuninni gætu hugsað sér að kjósa Donald Trump yngri, son forsetans, sem forseta árið 2024 og 16% gætu hugsað sér að senda Ivönku Trump dóttur forsetans í Hvíta húsið. Bæði hafa þau verið áberandi síðan faðir þeirra sigraði í kosningunum árið 2016.

Donald Trump yngri heldur hér á nýlegri bók sinni, en …
Donald Trump yngri heldur hér á nýlegri bók sinni, en hún ber heitið "Triggered: How the Left Thrives on Hate and Wants to Silence Us", eða Úr læðingi: Hvernig vinstrið þrífst á hatri og vill þagga niður í okkur. Bókin skaust á topp metsölulista New York Times eftir að hún kom út í nóvember. AFP

Pence vinsælasti valmöguleikinn

Mike Pence varaforseti nýtur mests stuðnings repúblikana í forsetastólinn árið 2024 á þessum tímapunkti, en 40% þeirra sem tóku þátt í könnunni segjast geta hugsað sér að kjósa hann árið 2024. Einnig nýtur Nikki Haley, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum, mikils fylgis en 26% aðspurðra gætu hugsað sér að kjósa hana árið 2024.

Pence, Trump, Hailey og Trump skipa efstu fjögur sætin í …
Pence, Trump, Hailey og Trump skipa efstu fjögur sætin í könnuninni. Graf af vef Axios

Aðrir sem komast á blað á eftir þessum fjórum eru stjórnmálamenn á borð við Marco Rubio, Mike Pompeo, Greg Abbott og Rick Scott, meðal annarra. Í frétt Axios segir að Donald yngri hafi verið vinsælasti valmöguleikinn hjá ungum kjósendum, en hjá þeim eldri hafi Pence verið með afgerandi meirihluta.

Það er auðvitað langt þangað til árið 2024 og enn á eftir að koma í ljós hvort Donald Trump haldi áfram sem forseti að afstöðnum kosningum sem fram fara í Bandaríkjunum í haust.

En niðurstöðurnar benda til þess að margir kjósendur Repúblikanaflokksins geti vel hugsað sér að Trump-ættin haldi velli í Hvíta húsinu næstu kjörtímabil þrátt fyrir að Donald Trump eldri megi ekki sitja sem forseti Bandaríkjanna lengur en til 2024.

Þessi skoðanakönnun segir okkur í rauninni ekki margt annað en …
Þessi skoðanakönnun segir okkur í rauninni ekki margt annað en það hversu sterkt Trump-vörumerkið er hjá kjósendum Repúblikanaflokksins. Hér kastar forsetinn derhúfu út í áhorfendaskarann á stuðningsmannafundi í Flórída í nóvember. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert