Japanski milljarðamæringurinn sem komst í heimsfréttirnar fyrr í mánuðinum eftir að hann auglýsti eftir lífsförunaut er hættur við.
Yusaku Maezawa auglýsti eftir unnustu sem væri tilbúin til að fljúga með honum í kringum tunglið með SpaceX-geimfari. Alls bárust tæplega 28 þúsund umsóknir en í dag greindi hann frá því að hann væri hættur við makaleitina og ætlaði bara að fara einn í ferðalagið árið 2023, samkvæmt frétt BBC.
Due to personal reasons, I have informed AbemaTV yesterday with my decision to no longer participate in the matchmaking documentary, hence requested for the cancellation of the show.
— Yusaku Maezawa (MZ) 前澤友作 (@yousuck2020) January 30, 2020