Grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína

Frá heimili Anne-Elisabeth Falkevik og Tom Hagen.
Frá heimili Anne-Elisabeth Falkevik og Tom Hagen. AFP

Tom Hagen var í morgun handtekinn fyrir morð eða hlutdeild í morði á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen, að því er fram kom á blaðamannafundi norsku lögreglunnar nú í morgun. Lögreglan vildi ekkert segja um ástæðu meints morðs en Tom Hagen verður yfirheyrður síðar í dag.

Hagen hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Lögreglan útilokar ekki að frekari handtökur fari fram vegna málsins.

„Eftir 18 mánaða rannsókn er Tom Hagen handtekinn vegna gruns um morð eða hlutdeild í morði á eiginkonu sinni,“ kom fram í máli lögreglu.

Anne-Elisabeth hvarf af heimili sínu í október fyrir hálfu öðru ári og hefur hennar verið leitað síðan. Fyrst var talið að hún hefði verið num­in á brott og heimtuðu meint­ir mann­ræn­ingj­ar lausn­ar­gjald en eig­inmaður henn­ar er einn auðug­asti maður Nor­egs. 

Tom Hagen var handtekinn í morgun þar sem hann var á leið frá heim­ili þeirra hjóna í Sloraveien í Lørenskog á leið til vinnu í Fut­ur­um.

Lögregla telur nú að Anne-Elisabeth hafi ekki verið numin á brott af heimili sínu, eins og fyrst var haldið. Ekkert hefur spurst til hennar frá því í október 2018.

Ýmsar tillögur tengdar málinu hafi verið hraktar og grunsemdir lögreglu um sekt Tom Hagen hafi smám saman styrkst, kom fram í máli rannsóknarlögreglumannsins Tommy Brøske.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert