Hvetur til frekari mótmæla

Svetlana Tikhanovskaya á blaðamannafundi að loknum kosningunum.
Svetlana Tikhanovskaya á blaðamannafundi að loknum kosningunum. AFP

Leiðtogi hvítrússnesku stjórnarandstöðunnar Svetlana Tikhanovskaya, sem segist hafa borið sigur úr býtum í kosningunum í landinu á sunnudaginn, hefur hvatt til frekari mótmæla gegn forsetanum Alexander Lúkasjenkó um helgina.

„Hvít-Rússar vilja ekkert með síðustu ríkisstjórn hafa lengur. Meirihluti fólks trúir því ekki að hann hafi sigrað,“ sagði Tikhanovskaya í myndskeiði sem hún tók upp í nágrannalandinu Litháen þar sem hún dvelur núna.

Að minnsta kosti 6.700 manns hafa verið handteknir síðan mótmæli hófust í landinu. Tveir hafa látist og hundruð hafa særst.

Tikhanovskaya krefst þess að stjórnvöld sleppi fólkinu úr haldi og að öryggissveitir hverfi af götunum.

Mótmælendur í Hvíta-Rússlandi.
Mótmælendur í Hvíta-Rússlandi. AFP

Hún vill að erlendar ríkisstjórnin aðstoði hana og stuðningsmenn hennar við að skipuleggja viðræður við stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi um valdaskipti.

Öryggissveitir standa vörð við byggingar ríkisstjórnarinnar.
Öryggissveitir standa vörð við byggingar ríkisstjórnarinnar. AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert