Tigrayum gefnir 72 tímar til að gefast upp

Margir Tigrayar hafa flúið heimkynni sín. Hér sjást tvær konur …
Margir Tigrayar hafa flúið heimkynni sín. Hér sjást tvær konur á heilbrigðisstofnun sem sett var á laggirnar til að hjúkra þeim sem flúið hafa. AFP

Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu, hefur gefið leiðtogum stjórnarandstæðinga úr hópi Tigraya í norðurhluta landsins 72 klukkustundir til þess að gefast upp, ellegar muni eþíópískar hersveitir hefja innrás í Mekele, höfuðstað Tigraya.

„Leiðangur ykkar í átt að eyðileggingu er að enda komin og við hvetjum ykkur eindregið til þess að gefast friðsamlega upp innan 72 klukkustunda,“ segir í yfirlýsingu Ahmed, sem beint var að leiðtogum stjórnarandstæðinga.

Þjóðarbrot Tigraya í Eþíópíu hefur mátt þola árásir stjórnvalda undanfarið vegna ásakana um að TPLF, stjórnmálaflokkur Tigraya, reyni að grafa undan stjórnvöldum og forsætisráðherranum sjálfum.

Þá er ekki langt síðan að yfirmaður í eþíópíska hernum sakaði Tedros Adhanom Ghebr­eyes­us, framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), um að liðsinna Tigrayum, en Ghebreyesus er sjálfur af þjóðarbroti Tigraya. Hann brást ekki við ásökununum.

Um 109 milljónir manna búa í Eþíópíu, þar af eru tæplega 9 milljónir Tigrayar, langflestir kristinnar trúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert