Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, ætlar ekki að vera viðstaddur innsetningarathöfn Joe Biden í embætti forseta Bandaríkjanna.
Þessu greinir hann frá á Twitter.
„Fyrir alla þá sem hafa spurt, ég ætla ekki að vera viðstaddur innsetningarathöfnina 20. janúar,“ tísti forsetinn.
To all of those who have asked, I will not be going to the Inauguration on January 20th.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 8, 2021