Dómsmálið gegn Chauvin heldur áfram

Mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan dómshúsið í Minneapolis í gær …
Mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan dómshúsið í Minneapolis í gær þegar val á kviðdómendum átti að hefjast. AFP

Val á kviðdómendum í dómsmálinu gegn Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumanni sem ákærður er fyrir að hafa banað George Floyd, hófst í dag. Enn er ekki ljóst hvort saksóknarar geti ákært hann fyrir morð af þriðju gráðu.

Chauvin er ákærður fyrir morð af annarri gráðu og manndráp fyrir að hafa kropið á hálsi Floyd í tæpar níu mínútur. Saksóknarar hafa óskað eftir því að bæta ákærulið við ákæruna og vilja að kviðdómendur hafi möguleikann á því að sakfella fyrir morð af þriðju gráðu. Er það talið auka líkurnar á að Chauvin verði fundinn sekur.

Dómarinn í málinu frestaði vali á kviðdómendum í gær þar sem úrskurður áfrýjunardómstóls lá ekki fyrir. Hann ákvað þó í dag að hefja ferlið sem mun taka um þrjár vikur.

Yfir 370 manns eru á vitnalista fyrir aðalmeðferð málsins sem á að hefjast 29. mars.

Myndband náðist af Derek Chauvin er hann kraup á hálsi …
Myndband náðist af Derek Chauvin er hann kraup á hálsi George Floyd. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert