Raul Castro segir af sér

Raul Castro sagði af sér í dag og batt þar …
Raul Castro sagði af sér í dag og batt þar með endi á langan pólitískan feril þeirra bræðra. AFP

Raul Castro, bróðir Fidels Castros, sagði í dag af sér sem formaður Kommúnistaflokks Kúbu. Í því starfi var hann einn æðsti valdamaður landsins. Um helgina verður arftaki hans kosinn á landsþingi Kommúnistaflokksins. 

Árið 2006 tók Raul við embætti formanns af Fidel en samanlagt hafa þeir verið valdamestu menn landsins frá árinu 1959. Fidel lést árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert