Matteo Salvini, fyrrverandi innanríkisráðherra Ítalíu, kom fyrir dóm í morgun í máli ákæruvaldsins gegn honum.
Salvini er ákærður fyrir að hafa brotið lög og misnotað vald sitt með því að neita 147 flóttamönnum, sem voru um borð við slæmar aðstæður í björgunarskipi, að koma í land á Ítalíu. Stóð það yfir í eina viku.
Samkvæmt ítölskum lögum er ekki hægt að sækja ráðherra til saka fyrir brot í embætti nema þingið svipti ráðherrann þinghelgi, en ítalska þingið samþykkti það fyrr á árinu.
Réttarhöldin eiga sér stað í Palermo á Sikiley og sagði dómari málsins, Roberto Murgia, í dag að allir þeir sem lögmenn vildu að bæru vitni fengju að gera það.
Þar á meðal eru bandaríski leikarinn Richard Gere, sem heimsótti skipið þar sem það lá úti fyrir ströndum Ítalíu, og fyrrverandi forsætisráðherrann Giuseppe Conte.
Salvini, sem er formaður hægrisinnaða þjóðernisflokksins Bandalagsins, er ákærður fyrir frelsissviptingu og misbeitingu valds vegna atviksins, sem átti sér stað í ágúst árið 2019.
Hann var viðstaddur réttarhöldin í dag en yfir honum vofir allt að fimmtán ára fangelsisdómur, ef hann verður fundinn sekur.
„Segið þið mér hversu alvarleg réttarhöld eru, þar sem Richard Gere mun koma frá Hollywood til að bera vitni um mína meinfýsni,“ sagði Salvini við blaðamenn á tröppum dómshússins.