35 látnir eftir árás Rússa

Slökkviliðsmenn bjarga konu úr fjölbýlishúsinu á laugardaginn.
Slökkviliðsmenn bjarga konu úr fjölbýlishúsinu á laugardaginn. AFP/Sergei Chuzavkov

35 manns eru látnir eftir loftárás Rússa á níu hæða blokk í úkraínsku borginni Dnípró í austurhluta landsins á laugardaginn.

Ríkisstjóri svæðisins greindi frá þessu. 

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti minnt­ist fórn­ar­lambanna á Twitter á laugardag og lagði áherslu á að Úkraínu­menn berj­ist fyr­ir hverju ein­asta manns­lífi og að Rúss­ar verði dregn­ir til ábyrgðar.

Íbúar fjölbýlishússins halda á eigum sínum eftir árásina á laugardag.
Íbúar fjölbýlishússins halda á eigum sínum eftir árásina á laugardag. AFP/Sergei Chuzavkov
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert