Fjórir létust er flugvél brotlenti í fjalllendi í Virginíu-ríki í Bandaríkjunum um 275 kílómetrum frá Washington-borg.
Vélinni var flogið inn í lokaða lofthelgi yfir Washington og svaraði flugmaðurinn ekki yfirvöldum sem olli því að F-16 herþotur veittu vélinni eftirför.
Fjórir voru um borð í flugvélinni, þar á meðal tveggja ára stúlka og móðir sem öll létu lífið er flugvélin brotlenti. Óljóst er af hverju flugmaðurinn svaraði ekki yfirvöldum.
Bandarísku herþoturnar rufu hljóðmúrinn yfir borginni og voru margir borgarbúar áhyggjufullir vegna látanna enda heyrðist mikill hávaði við þetta.