Ráðherrar framsóknar af ríkisstjórnarfundi án niðurstöðu

Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson hafa ekki náð saman um …
Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson hafa ekki náð saman um frumvarp að þjóðaratkvæði. mbl.is

Ekki tókst að ganga frá frumvarpi um þjóðaratkvæði vegna frumvarps um eignarhald á fjölmiðlum á fundi ríkisstjórnarinnar sem hófst klukkan 14. Tæpum stundarfjórðungi seinna gengu ráðherrar Framsóknarflokksins af fundi og hurfu út úr stjórnarráðinu. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði við það tækifæri að áfram yrði unnið í málinu fram eftir degi. Ráðherrar sjálfstæðisflokksins sitja áfram inni í fundarherbergi ríkisstjórnarinnar.

Halldór Ásgrímsson sagði að verið væri að vinna í málinu. Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu væri ekki endanlega tilbúið, m.a. þar sem þeir Davíð Oddsson hefðu báðir verið í útlöndum. Sagðist hann ekki vilja tala um ágreining og bað menn um að sýna þolinmæði meðan haldið væri áfram að fullvinna frumvarpið.

Ríkisstjórnarfundur hafði verið boðaður klukkan 10:30 í morgun en var frestað á síðustu stundu til klukkan 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert