12 hljóta menningarstyrk Visa

Styrkhafar VISA ásamt stjórn menningarsjóðsins.
Styrkhafar VISA ásamt stjórn menningarsjóðsins.

Menningarsjóður VISA hefur nú úthlutað 12 styrkjum til ýmissa menningarmála, en þetta er í þrettánda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. Frá upphafi hafa alls 104 styrkir verið veittir. Í ár ákvað stjórn sjóðsins að styrkfjárhæðinni skyldi varið til menningar- líknar- og velferðarmála, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Að þessu sinni hlutu eftirtaldir styrk úr sjóðnum:

Ferðafélag Íslands
Ferðafélag Íslands hlaut styrk til að hvetja eldri borgara til hreyfingar og útiveru og standa fyrir verkefni því tengdu.

Félagasamtök
MS-félagið hlaut styrk til að létta undir með sjúklingum og aðstandendum þeirra
Félag CP á Íslandi hlaut styrk til að vinna að bættum hag fatlaðara barna.
Fjölsmiðjan var styrkt til áframhaldandi uppbyggingar á vinnusetri fyrir ungt fólk er stendur á krossgötum. 

Þjóðmenning
Verkefnið „Vísir að umferðarsögu Íslands hlaut styrk til frekari þróunar á gagnagrunni sínum og til útgáfu á ritinu ,,Aldarspegill um umferðarmál”.
Mats Wibe Lund var veittur styrkur til að efla uppbyggingu myndasafnsins www.mats.is.  

Tónlist
Kór Langholtskirkju var styrktur til að frumflytja á Íslandi verkið Dixit Dominus eftir Vivaldi með kór og kammersveit. 

Fimm ungir tónlistarmenn hlutu styrk til frekara tónlistarnáms: 
Hulda Jónsdóttir - til framhaldsnáms í fiðluleik við Juilliard listaháskólann í New York.
Lilja Rúriksdóttir - til framhaldsnáms í dansi við Juilliard listaháskólann í New York.
Matthildur Anna Gísldóttir - til mastersnáms á píanó við óperudeild Royal Academy of Music í London.
Birna Hallgrímsdóttir - til framhaldsnáms í píanóleik við Royal College of Music í London.
Júlía Traustadóttir - til framhaldsnáms í söng við Royal College of Music í London.

Í stjórn Menningarsjóðs VISA sitja Jakob Bjarnason, stjórnarformaður Valitor, Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Valitor og Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert