Vindhviður í 52 metra á sekúndu

Lögreglan í Borgarnesi hefur ákveðið að loka veginum sem liggur undir Hafnarfjalli. Vindhviður hafa farið upp í 52 metra á sekúndu og búist er við áframhaldandi hvassviðri fram á kvöld.

Skil óveðurslægðarinnar fara hratt norðaustur yfir landið. Lægir mikið suðvestantil og styttir upp eftir kl. 17 eða 18.

A- og NA-lands gengur veðrið ekki niður fyrr en í nótt. Snýst í SV-storm suðvestan- og vestanlands í nótt og fyrramálið og þá með krapaéljum og hálku ofan um 200-300 metra hæðar.

Óveður er nú víða á suðvesturhorni landsins, undir Eyjafjöllum, á Holtavörðuheiði og á sunnanverðum Vestfjörðum og vetrarfærð í flestum landshlutum.

Óveður er nú á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi og einnig á Sandskeiði. Snjóþekja og éljagangur er á Hellisheiði og Þrengslum en hálkublettir og óveður á Mosfellsheiði og við Þingvallavatn. Hálkublettir eru í uppsveitum Árnessýslu.

Vegir fyrir austan Selfoss eru að mestu greiðfærir en óveður er undir Eyjafjöllum

Hálka eða hálkublettir eru nú víða á vegum á Vesturlandi. Á Fróðárheiði er þungfært og stórhríð en hálka og éljagangur á Vatnaleið og Bröttubrekku.

Það er hálka eða hálkublettir allvíða á Vestfjörðum, einkum á heiðum og hálsum. Óveður og hálka er á Kleifaheiði, Mikladal, og á Hálfdáni.

Á Norðurlandi vestra  eru hálkublettir mjög víða en hálka á Þverárfjalli, í Langadal og hálka og óveður á Vatnsskarði.

Norðaustanlands er hálka á flestum vegum en þæfingsfærð á Dettifossvegi.

Á Austurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja en að mestu autt með ströndinni að Hvalnesi. Hálka er á kafla fyrir vestan Höfn og snjóþekja fyrir vestan Kirkjubæjarklaustur en annars eru vegir greiðfærir við suðausturströndina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert