DV flytur í Kringluna

Sverrir Vilhelmsson

Nútíminn greinir frá því að starfsemi DV verði flutt í Kringluna, nánar tiltekið stóra turninn, innan tíðar. Útgáfufélagið sameinaðist á dögunum Vefpressunni og munu DV, Pressan, Eyjan og Bleikt deila húsnæði á tveimur hæðum. 

DV er nú til húsa í Tryggvagötu 11 í miðbæ Reykjavíkur. 

Þetta eru ekki einu fréttirnar tengdar DV sem bárust í dag því Jón Bjarki Magnússon tilkynnti einnig að hann hefði látið af störfum í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert