Göngin opnuð á ný

Búið er að opna göngin á ný en þau voru …
Búið er að opna göngin á ný en þau voru lokuð fyrr í dag vegna alvarlegs umferðarslyss. mbl.is/Golli

Búið er að opna Hvalfjarðargöngin á ný. Samkvæmt upplýsingum frá Speli voru göngin opnuð um klukkan 17:20 og er afar mikil umferð í gegnum þau. Loka þurfti göngunum fyrr í dag vegna alvarlegs umferðarslyss.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er störfum lögreglu og annarra viðbragðsaðila lokið á slysavettvangi.

Einn af þeim fimm sem lentu í hörðum árekstri þegar jeppi og fólks­bif­reið skullu sam­an í göngunum um klukk­an tvö í dag lést á vett­vangi. 

Frétt mbl.is - Banaslys í Hvalfjarðargöngum 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert