Svifryk yfir heilsuverndarmörkum

Svifryk yfir höfuðborginni.
Svifryk yfir höfuðborginni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varar fólk sem þjáist af öndunarfærasjúkdómum og börn við að vera mikið úti í nágrenni við miklar umferðargötur vegna lélegra loftgæða sem stafa af kyrru veðri og þurru á höfuðborgarsvæðinu en Veðurstofa Íslands spáir svipuðu veðri á morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

„Styrkur svifryks (PM10) og köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) hefur verið hár það sem af er degi 27. nóvember og verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í nágrenni við miklar umferðargötur og jafnvel víðar í borginni. Einnig hafa komið toppar í styrk brennisteinsvetnis (H2S).  Í dag er hægur vindur og kalt, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Á morgun er búist við svipuðu veðri og því von á áframhaldi á frekar lélegum loftgæðum,” segir í tilkynningunni.

Sólarhrings heilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru þau 75 míkrógrömm á rúmmetra.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í nágrenni stórra umferðargatna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert