Kanna bótarétt sinn gagnvart borginni

Umbjóðendur Sævars Þórs Jónssonar, lögmanns, sem hafa kært karlmann sem …
Umbjóðendur Sævars Þórs Jónssonar, lögmanns, sem hafa kært karlmann sem starfaði sem stuðningsfulltrúi hjá Barnavernd Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot, munu kanna bótarétt sinn gagnvart borginni. mbl.is/Hari

„Það er alveg ljóst að við munum skoða réttarstöðu umbjóðenda minna í kjölfar þessarar skýrslu með það í huga að sækja rétt þeirra gagnvart borginni,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður og rétt­ar­gæslumaður drengs­ins sem lagði fram kæru á hend­ur karl­manni á fimm­tugs­aldri í ág­úst á síðasta ári fyr­ir kyn­ferðis­brot sem hann á að hafa framið gegn hon­um á ár­un­um 2004 til 2010. Karlmaðurinn starfaði sem stuðnings­full­trúi á heim­ili Barna­vernd­ar Reykja­vík­ur þegar brotin áttu sér stað.

Frétt mbl.is: Stuðningsfulltrúi verði áfram í haldi

Í skýrslu Innri end­ur­skoðunar Reykja­vík­ur­borg­ar á verk­ferl­um og regl­um er varða til­kynn­ing­ar og ábend­ing­ar sem ber­ast til Barna­vernd­ar Reykja­vík­ur, sem kom út í dag, kemur fram að mis­tök starfs­manns hjá Reykja­vík­ur­borg leiddu til þess að til­kynn­ing um kyn­ferðis­brot manns­ins barst ekki til stjórn­enda.

Frétt mbl.is: Starfsmaður borgarinnar gerði mistök

Sævar segir það þunnan þrettánda að rekja mistökin til þess að símsvörun hafi ekki verið í lagi og að starfsmaður hafi ekki komið skilaboðum til Barnaverndar Reykjavíkur. „Ég dreg það alveg stórlega í efa að einhver sem hringir inn í þjónustuver borgarinnar sé að tjá sig um svo viðkvæm mál við þann starfsmann sem svarar því símtali, hann biður eflaust um einhvern innan barnaverndarnefndar til að svara símtalinu.“

Afþakka fund með Barnaverndarnefnd 

Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur boðað umbjóðendur Sævars til sín til að fara yfir málið. „Þeir hafa ekki þegið boðið að svo stöddu. Þau vilja kanna sína réttarstöðu, bæði gagnvart borginni og velferðarsviði,“ segir Sævar, sem segir að það séu meiri líkur en minni að umbjóðendur hans muni láta reyna á bótagrundvöll í málinu.

„Það er klárlega búið að viðurkenna það að það hafi átt sér stað mistök sem geta hafa leitt til þess að ef verkferlar hefðu verði í lagi innan borgarinnar þá hefði hugsanlega verið hægt að grípa fyrr inn í gagnvart þessum manni og komið í veg fyrir brot sem áttu sér stað, allt aftur til 2010.“

Mun alvarlegra mál en talið var í upphafi

Að mati Sævars liggur alvarleiki málsins fyrst og fremst í því að mistök hafa átt sér stað frá upphafi. „Líkt og lögreglan hefur Barnaverndarnefnd viðurkennt þau mistök og það þarf auðvitað að kanna enn dýpra. Við erum ekki að tala um lítilfjörlegt atriði, við erum að tala um grafalvarleg mál. Það áttu sér stað hugsanleg kynferðisbrot gegn umbjóðenda mínum allt aftur til 2010. Ef verkferlar hefði verið í lagi hefði verið hægt að grípa fyrr inn í og koma í veg fyrir sum brotanna.“

Sævar segir að eftir því sem málið dregst á langinn þyngist það. „Þetta er mjög þungt mál fyrir þá sem koma að því. Það hefur komið í ljós að þetta er mun alvarlegra mál en haldið var í upphafi.“

Í skýrslu Innri endurskoðunar borgarinnar sem kynnt var í dag er að finna aðgerðaráætl­un í tíu liðum til að bregðast við og auka ör­yggi barna. Í áætluninni felst meðal annars að styrkja ráðningarferli innan velferðarsviðs borgarinnar, koma á rafrænum ábendingahnappi og þá verður gerð úttekt á skipulagi barnaverndarstarfs. 

Sævar þorir ekki að spá fyrir um hver niðurstaða málsins verður en hann segir það jákvætt að stjórnvöld virðast ætla að lofa bót og betrun á verkferlum. „Þá er ég aðallega að tala um lögreglu og Barnaverndarnefnd en það er samt sem áður búið að eiga sér stað það alvarleg mistök að þarna eru einstaklingar sem hafa orðið fyrir gríðarlegu tjóni. Við erum að tala um mistök sem hafa átt sér stað í nútímanum, þannig séð, þetta er ekki margra áratuga gamalt og það er áfall en ég vænti þess að það komi ásættanleg niðurstaða í málið, miðað við hvernig hefur verið unnið að málinu hér eftir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert