Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslunni sömdu

Samninganefndir flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni og ríkinu undirrituðu nýjan kjarasamning í …
Samninganefndir flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni og ríkinu undirrituðu nýjan kjarasamning í kvöld.

Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslunni skrifuðu í kvöld undir kjarasamning að loknum fundi hjá ríkissáttasemjara. Samningurinn verður lagður sem fyrst undir félagsmenn. „Það er búið að semja samning og nú fer samningurinn í atkvæðagreiðslu,“ sagði Guðmundur Úlfar Jónsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, í samtali við Morgunblaðið fyrr í kvöld.

Flug­virkj­ar hjá Land­helg­is­gæslu Íslands felldu í síðustu viku kjara­samn­ing sem skrifað var und­ir 18. apríl síðastliðinn. Samn­ing­ur­inn tek­ur til 18 starfs­manna og stefnt er að því að fram fari rafræn kosning um samninginn.  

Boðað var til verkfalls 11. maí en því hefur verið frestað til 23. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert