Mamma vill að ég setji klærnar út

Albert Guðmundsson landslilðsmaður í knattspyrnu og móðir hans Kristbjörg Ingadóttir.
Albert Guðmundsson landslilðsmaður í knattspyrnu og móðir hans Kristbjörg Ingadóttir. mbl.is/Eggert

Albert Guðmundsson var enn hvítvoðungur þegar fjölmiðlar tóku að skrifa um hvað drengurinn ætti að heita, hvort það væri ekki augljóst að hann yrði nefndur eftir langafa sínum og fyrsta atvinnumanni Íslendinga í knattspyrnu, Alberti Guðmundssyni, síðar ráðherra og sendiherra.

Pressan var þó lítil frá fjölskyldunni þótt drengurinn endaði á að fá nafn langafa. Tvítugur er Albert að feta kannski ekki ósvipuð spor og langafi hans, hann er í atvinnumennsku í Hollandi með PSV Eindhoven og fékk einstakt tækifæri til að æfa erlendis aðeins 16 ára gamall. Með landsliðinu fer hann svo á heimsmeistaramótið í Rússlandi í júní.

Hæfileikarnir koma ekki á óvart ef Kári Stefáns er hafður með í för. Albert er samsuða af genum afreksfólks í knattspyrnu sem allt hefur leikið með landsliðunum. Faðir hans er knattspyrnumaðurinn og íþróttalýsandi Íslands, Guðmundur Benediktsson. Móðir Alberts, Kristbjörg Ingadóttir, lék með landsliðinu í knattspyrnu. Faðir Kristbjargar, Ingi Björn Albertsson, var lengi markahæsti leikmaðurinn í íslenskri knattspyrnu og svo er það langafinn Albert, sem lék meðal annars með AC Milan og Arsenal. Albert var farinn að elta bolta um leið og hann gat skriðið.

Að ná árangri í íþrótt gerist þó sjaldnast bara með góðum genum, það þarf líka gott atlæti eins og foreldrar Alberts hafa veitt honum.

Móðir Alberts, sem alltaf er kölluð Krissa, býður blaðamanni í snúða og kaffi einn úrvalsrigningardag maímánaðar 

Elti Albert til Hollands

Fyrstu minningarnar um fótbolta, Albert?

Albert: „Fyrstu minningarnar snúast um að fara með pabba, þriggja til fjögurra ára, á æfingar á KR-vellinum, horfa á og tína saman bolta. Ég var um tíma lukkudýr KR, litla ljónið, og hljóp þá út um allt í búningnum. Hef verið heillaður af fótbolta frá því ég man eftir mér.“

Krissa: „Það kom einhvern veginn aldrei neitt annað til greina í huga Alberts. Við Gummi vorum bæði á fullu í fótbolta þegar hann fæddist, ég hafði alltaf verið í Val en skipti yfir í KR þar sem það hentaði okkur betur, ég gat þá tekið hann með á æfingar og barnapían kom þangað. Við sáum strax á fyrstu æfingum Alberts að hann hafði alveg sérstakan fókus. Það voru ekki allir tilbúnir að vera á fótboltaæfingunni og fannst spennandi að ganga á eftir bláu og grænu línunum í íþróttasalnum. Albert var hins vegar mættur til að spila fótbolta og ekkert annað og neitaði að fara í vesti yfir búninginn því á honum stóð Zidane og hann var Zidane.“

Faðir Alberts er Guðmundur Benediktsson og það er stutt í …
Faðir Alberts er Guðmundur Benediktsson og það er stutt í góð ráð og faðmlög frá foreldrunum á vellinum.

Nú hefur mamma þín lýst þér, Albert, en hvernig er mamma þín?

Albert: „Mamma er ofurmamma. Ég á þrjár yngri systur sem allar spila fótbolta og hún er mætt á öll fótboltamót, þótt þau séu öll á sama tíma. Þá er hún bara einhvern veginn á þremur stöðum í einu. Hún hefur eiginlega bara alltaf gert allt fyrir okkur, og oft ein þar sem pabbi er að vinna lengi, fram á kvöld í tengslum við íþróttalýsingar og slíkt.

Það sem er mikilvægt er að hún er ekki bara til staðar þegar vel gengur heldur líka þegar við eigum slæma daga, þá er hún þarna líka til að klappa okkur á bakið og styrkja.

Ég held að ég átti mig alveg á því að það eru ekki allir svo heppnir að bæði eiga mömmu og það góða mömmu. Kannski kom það best í ljós þegar hún flutti út til mín til Hollands, sem mér þótti reyndar svolítið augljóst skref. Úti hélt hún þessu áfram, sótti mig og keyrði á allar æfingar.“

Krissa: „Ég flutti út í eitt ár, 2015. Albert hafði þá verið úti í tvö ár, að spila með Heerenveen frá 16 ára aldri en hafði þá verið svo heppinn að búa hjá hollenskri fjölskyldu sem hélt vel utan um hann. Þegar hann var keyptur til PSV stóð til að hann myndi búa einn og okkur foreldrunum fannst Albert ekki alveg tilbúinn í það. Ég fór því út með systur hans þrjár og Gummi var heima, en flaug til okkar þegar færi gafst. Það var mjög gaman að fara út og ná að skilja umhverfi Alberts betur þótt það reyndi svolítið á systur hans, sem söknuðu pabba síns. Ég flutti heim þegar kærasta Alberts flutti út en viðurkenni að sakna þess svolítið að vera í kringum hann. Ég er búin að fylgja honum eftir síðan hann byrjaði í fótbolta og finnst oft rosalega erfitt að geta ekki mætt á leikina hans því það hef ég gert alla tíð. Fyrst eftir að Albert flutti út löbbuðum við foreldrar hans oft niður á KR-völl, stóðum og horfðum á vini hans spila í sárabætur og tókum andköf af tilfinningasemi.“

Albert: „En af því að ég er búinn að tala um mömmu og svo ég komi að pabba þá hefur hans aðferð verið að tala við mig á rólegum nótum um hvað ég geti bætt í mínum leik. Mamma hefur meira verið í því að ég eigi að setja klærnar út og bíta frá mér. Hún er alveg glerhörð í því. En þetta er mjög gott mix, hvað mamma og pabbi eru ólík í sinni nálgun. Svo koma systur mínar sterkar inn.“

Helst við pabbi sem erum ósammála um boltann

Í gömlu viðtali talaðir þú um að þú ætlaðir að komast í lið Barcelona, Albert.

Albert: „Ætlaði? Þú meinar ætlar.“

Krissa: „Ég reyndi nú mjög oft að ræða þetta við hann, þetta gerðist ekki alltaf eins og maður vildi.“

Albert: „Mamma og pabbi minntu mig reglulega á að ef ég vildi láta þessa drauma rætast yrði ég kannski að sleppa einhverju í staðinn, böllum í skólanum og að hanga lengi fram eftir með vinum mínum. Mér fannst það ekkert mál því það var fyrir fótboltann.“

Krissa: „Albert fékk einstakt tækifæri til að fara út og æfa, aðeins 14 ára gamall, með liðum eins og Liverpool og Arsenal. Þá þéttist ramminn auðvitað svolítið kringum hann og hann sá að atvinnumennska var möguleiki. Þegar hann fór út 16 ára lögðum við mjög hart að honum að gera sér grein fyrir að það yrði enginn atvinnumaður 16 ára gamall, þetta væri ekkert komið og úti í þessum stóra heimi er enginn sem hjálpar manni, þú ert þarna upp á eigin spýtur og aðeins manns eigið vinnuframlag kemur manni lengra, í mjög hörðum heimi. En þarna fékk hann einstakt tækifæri til að komast nær markmiði sínu.“

Er annars aldrei deilt um boltann á heimilinu?

Albert: „Það er helst við pabbi sem erum aðeins ósammála. Pabbi er meira fyrir Manchester United en ég held með Arsenal.“

Krissa: „Þetta var allt í lagi í fyrstu, Albert hélt upp á Beckham sem spilaði á þeim tíma með United en svo fór ég að fara með Albert um helgar til fjölskyldu minnar, þegar Gummi var upptekinn við að lýsa leikjum. Fjölskylda mín er gallhart Arsenal-fólk enda spilaði afi með liðinu. Það er alltaf svakaleg stemning um helgar þegar pabbi og bræður mínir hittast og Albert datt inn í þá stemningu. Það hefur farið svolítið í taugarnar á Gumma, sem er alltaf að reyna að ná honum til baka í sitt lið.“

„Mamma er ofurmamma. Ég á þrjár yngri systur sem allar …
„Mamma er ofurmamma. Ég á þrjár yngri systur sem allar spila fótbolta og hún er mætt á öll fótboltamót, þótt þau séu öll á sama tím. Þá er hún bara einhvern veginn á þremur stöðum í einu,“ segir Albert. mbl.is/Eggert

Tilbúinn ef kallið kæmi

Bjóstu við að verða valinn í liðið fyrir HM?

Albert: „Ég var tilbúinn ef kallið myndi koma. Ég hugsa þetta yfirleitt þannig að það er betra að vera klár ef kallið kemur en að búast ekki við að kallið komi og vera þá ekki klár. En ég held ég sé ekki ennþá búinn að átta mig á því að ég sé að fara út. Æfingar eru núna frekar stífar, mikið af hlaupum og verið að koma mönnum aftur í form.“

Nú er mikið talað um að ástríðulýsandinn pabbi þinn geti lent í því að þurfa að lýsa þér, hvernig heldurðu að það gæti farið?

Albert: „Ég veit ekki alveg hvort það er eitthvað kreisí við það. – Ég held að þetta geti hvort sem er ekkert orðið svakalegra en lýsingarnar á EM.“ Við springum úr hlátri.

En þér, Krissa – hvernig líst þér á það?

Krissa: „Ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvernig það verður ef Albert fær einhverjar mínútur – ég veit það eru margir að bíða eftir því hvort Gummi missir sig í tilfinningunum. En Gummi er nú frekar faglegur þannig að ég hugsa að hann muni halda sínu striki því hann er, þótt sumum þyki ótrúlegt, pollrólegur að eðlisfari. Við sem þekkjum hann vel rákum upp stór augu yfir leiklýsingunni á EM. Ég man að þegar ég sá þetta fyrst var ég bara eins og hálfhneyksluð: Gummi! Og hann á meira að segja mjög erfitt með að horfa á þetta sjálfur. En ég hugsa að allir Íslendingar hafi sýnt nákvæmlega þessi viðbrögð og Gummi endurspeglaði þær tilfinningar. Það fóru allir út úr líkamanum, fólk vissi ekki hvort það ætti að hlæja eða gráta.

Gummi segir sjálfur að hann muni stundum ekkert hvað hann er að segja, ástríðan er bara þannig og af því hann var leikmaður sjálfur á hann svo auðvelt með að staðsetja sig og vera í þessum sporum með liðinu.“

Viðtalið í heil birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert